Helga Ingibjörg og Hulda Halldóra
Greindust báðar 34 ára með brjóstakrabbamein
„Fyrir þig“
Við vorum báðar 34 ára þegar við greindumst með brjóstakrabbamein í október á síðasta ári. Brjóstakrabbameinið var í vinstra brjósti hjá Helgu og hafði dreift sér í eitil en í hægra brjóstinu hjá Huldu. Við fengum báðar símtal á föstudegi í vinnunni og brugðumst í raun svipað við og höfum síðan gengið saman í gegnum þetta kaldhæðna ferli. Við erum svo þakklátar fyrir að hafa hver aðra, við erum góðar vinkonur fyrir en erum enn sterkari saman eftir greininguna.
Helga: Ég starfa sem lögreglumaður. Ég var á tólf tíma vakt á föstudegi þegar ég fæ símtalið. Þar var mér tilkynnt að þau höfðu fundið eitthvað í sýninu sem þurfti að skoða betur og vildu að ég kæmi strax eftir helgi að hitta lækni. Mig hafði lengi grunað að eitthvað væri að en að heyra það var óraunverulegt og var þetta mesta áfall sem ég hef upplifað. Varðstjórinn sá strax á mér að eitthvað hefði komið fyrir, ég fór afsíðis og hringdi í mömmu og brotnaði algjörlega niður. Hausinn á mér fór á flug. Ég var strax byrjuð að hugsa það versta og hugsa um það hver myndi ættleiða drenginn minn og útbjó erfðaskrá í huganum. Þetta var einfaldlega dauðadómur fyrir mér á þessum tímapunkti.
Hulda: Ég starfa sem stílisti og var að hefja langan tökudag á kvikmyndasetti á Skógum undir Eyjafjöllum.. Ég henti öllu frá mér og hljóp út á tún með símann. Ég var boðuð í viðtal næsta mánudag og sagt að ég ætti að taka aðstandenda með mér. Þá vissi ég að það væri eitthvað að. Ég heimtaði að fá að vita hvað væri í gangi og þá var mér sagt að ég væri með illkynja krabbamein. Heimurinn minn hrundi á augnabliki. Ég hélt ég væri að fara að deyja. Ég var búin að greina mig sjálfa með annað krabbamein. Mæli ekki með að reyna að sjúkdómsgreina sjálfan sig á netinu. Alla helgina hugsaði ég um líf mitt og strákana mína tvo með tárin í augunum. Eftir á að hyggja var það í raun gott að fá helgina til að melta þetta allt og vera tilbúin með spurningar fyrir lækninn á mánudeginum.
Hulda og Helga eru þakklátar að finna styrk í hver annarri. Þær hafa báðar leitað til Krafts og fundið þar jafningjastuðning t.d. í StelpuKrafti þar sem stelpur deila sinni reynslu.
Helga: Kraftur skiptir svo miklu máli þegar maður er ungur og greinist með krabbamein. Þá eru plönin allt önnur en kannski þegar maður er eldri. Kraftur er ótrúleg gjöf fyrir ungt fólk, þau eru svo dugleg að halda utan um mann. Ég fékk t.d. afmæliskort þegar ég átti afmæli í desember, yndislegt handskrifað afmæliskort, sem að ég grét yfir. Það var svo yndislegt að vita það að fólk innan Krafts væri að hugsa til manns, að maður væri ekki bara eitthvað nafn á blaði.
Hulda: Já, ég er svo fullkomlega sammála. Kraftur! takk fyrir að sýna okkur að krabbameinsgreining sé ekki dauðadómur þrátt fyrir að það sé auðvitað skrýtið að vera komin í klúbbinn sem enginn vill vera í. Það er svo gott að geta nýtt þjónustuna og fá aðstoð að vinna úr áfallinu og halda áfram með lífið. Þjónustan á borð við dagbókina, handbókina, afslættina, stuðninginn og lyfjakortið er snilld og hlakka ég til að geta nýtt þetta allt saman og dagskrána hjá Krafti enn betur.
Helga og Hulda eru báðar sammála um það að krabbameinsgreiningin hafi breytt lífsviðhorfi þeirra. Þær hugsi meira um hvað þær eru að gera á hverjum degi og njóti augnabliksins með fjölskyldu og vinum og rækti fólkið sitt. Hægjum á lífinu og njótum, því lífið er núna.
Lífið er núna kollan
Sýndu Kraft í verki með því að setja upp LÍFIÐ ER NÚNA kolluna.
Húfurnar eru fáanlegar í tveimur litum og henta bæði fullorðnum og börnum. Það er hægt að bretta upp á þær að vild þar sem Lífið er núna merkið getur sést á alls kyns vegum.
Húfurnar fást á vef Krafts, í Companys Kringlunni, Karakter Smáralind og völdum Krónuverslunum.