
- This event has passed.
Útgáfuhóf LífsKrafts
4. febrúar, 2019 @ 17:00 - 18:30

Útgáfuhóf bókarinnar „Fokk ég er með krabbamein“, var haldið mánudaginn 4. febrúar á alþjóðadegi gegn krabbameinum. Þá fögnuðum við nýrri útgáfu bókarinnar LífsKrafts undir þessu nýja nafni. Bókin kom fyrst út árið 2003 og hefur síðan verið endurútgefin fjórum sinnum.
Á 20 ára afmælisári Krafts þótti við hæfi að endurskrifa og uppfæra bókina og færa hana í nýjan og nútímalegri búning. Sem fyrr er bókin ítarleg handbók fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur – þótt efnistökin séu sett upp á nýstárlegri og um leið aðgengilegri hátt. Kraftur hefur notið aðstoðar fjölda manns við gerð bókarinnar, bæði fagmanna og félagsmanna í Krafti.
Útgáfuhófið var haldið mánudaginn 4. febrúar kl 17.00 í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal. Boðið var upp á léttar veitingar auk þess sem hljómsveitin Ylja tók nokkur lög.
Þú getur lesið bókina hér á netinu eða fengið hana senda heim til þín og greiða þá bara sendingarkostnaðinn. Hér er hægt að fá bókina senda heim.
Hér má sjá myndir af útgáfuhófinu þann 4.febrúar